Artímu-Bíó - ath. ný mynd

Næsta Artímu-bíó verður með nýstárlegu sniði. Við ætlum að hafa það enn notalegra en áður því við verðum í sófanum heima.

sem sé : 
Á miðvikudaginn kemur, 20.febrúar, kl. 20.30 ætlum við að hittast heima hjá Sóleigu Ásu (á Eggertsgötu 32 íbúð 302) . Við poppum og kaupum kók handa ykkur , nokkuð sem ekki er leyfilegt í stofunum í Háskólanum.

Við ætlum að horfa á :      Solation Service, eftir Eija-Liisa Ahtila

Falleg og ljóðræn myndlist í videoformi. Þau ykkar sem voruð í námskeiðinu Kvikmyndlist hjá Hlyn í fyrravetur (jafnvel líka núna) ættuð að kannast við þetta. Verkin hennar eru t.d. stundum sett upp á tveimur skjáum (undarlegt í ft þetta orð)
 

Hlökkum til  að sjá ykkur,
Artíma


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband